miðvikudagur, maí 07, 2008

Om mani padme hum

Aftur komin til Kathmandu e. gongu um Sagarmata thjodgardinn, alias Everest svaedid.

Vid flugum aftur m. snjomanninum ogurlega til Lukla 26. sl. Flugbrautin i Lukla er su skemmtilegasta sem eg hef lent a. Afskaplega stutt og liggur i brekku, svo er thad bara ad snarstoppa um leid og hjolin snerta brautina t.a. lenda ekki a veggnum sem blasir vid endann.

Hopurinn godur og adeins fjolthjodlegri en sa fyrri, astralir enn i meirihluta en lika folk fra Nyja Sjalandi og Englandi. A ollum aldri.

Ferdin m. svipudu snidi og Annapurna, th.e. guide, serpar, kokkafolk og porterar sem gera ferdina ad tvid sem hun er.
Svaedid odruvisi tho, bara svolitid islenskt svona a haestu punktunum, grjot og gras og moar. En i hlidunum voru grenitre og rhodadendron tre blomstra mjog fallega mism. bleikum blomum, thau eru thjodarblom Nepala.
Husin flest ur steinum. Sa nokkur i byggingu. Thau eru byggd thannig ad haugur af grjothnullungum er dompad a lod, thar taka vid "smidir" sem med hamar og stedja, brjota seinana nidur, gera tha ferkantada eins og mursteina og svo er theim radad upp. Engin onnur verkfaeri.
Buddhatruin aberandi, mani steinar ut um allt, baenaflogg og baenahljol. Madur vard ad passa sig ad labba haegra megin vid thessa hluti og helst muldra om mani padme hum i leidinni.

Utsynid audvitad storkostlegt. Oll thessi risafjoll sem blostu vid thegar madur arkadi upp og nidur hlidarnar. Fannst stundum ekki taka thvi ad labba upp brekku bara til ad labba nidur aftur. Endalaus trafikk a vegaslodunum, folk alltaf ad burdast med dot fram og til baka en Yaks (jakuxar?), lodnir nautgripir sem thola illa vid undir 3000 m haed, lika notadir.

Ferdinni okkar var heitid til Ama Dablam grunnbudanna. Thad tok okkur 3 daga ad komast til Namche, hofudstads serpanna. A leidinni thangad gistum vid hja litlum thorpum, fyrst Ghat, svo Monjo. Stoppudum 2 naetur i Namche, t.a. venjast adeins haedinni. Baerinn er i ca 3400m stadsettur i hlid sem er i lagninu eins og hestaskeifa. Thadan la leidin til Thamboche og Deboche. A badum thessum stodum kiktum vid inn i buddhaklaustur. Munkarnir og nunnurnar satu og voru ad bidja/kyrja/chant-a, einstakt ad sitja tharna inn i myrku herberginu og hlusta a thau.
Datt helst i hug Landmannalaugar thegar vid komum i grunnbudirnar, nema haerri fjoll, odruvisi a litinn og enginn heitur laekur. Thar var kalt og thad snjoadi a okkur thegar vid lobbudum adeins upp fyrir svaedid t.a. geta sagst hafa druslast yfir 5000 metrana. Svo a madur eftir ad muna eftir svona litlum momentum eins og ad standa uti i frosti ad brusta tennurnar, med skuggann af fjollunum i kringum sig, otrulega margar stjornur og serpastrakur ad syngja inn i tjaldinu sinu. Beid eins lengi og eg gat eftir stjornuhrapi t.a. gera thetta fullkomid en frosnar taer hofdu vinninginn :/

Vorum heppin med vedrid alla leidina upp, heidskyrt og hr. Everest & co. i sjonlinu fra odrum degi. Reyndar i fjarlaegd og Nupse ad thvaelast fyrir en hann var tharna samt. Ekki leidinlegt ad opna tjaldid a morgnanna....hae Everst! Annars voru nu fleiri fjallstindar tharna ekki tilkomuminni. Ama Dablam, Lhotse, Pumori,Thamserku, Kantega, Kusum Kanguru svo e-d se nefnt (mjog erfitt ad muna thessi nofn finnst mer).

Bakaleidin nokkurn vegin su sama, komum vid i Kumjung og Khunde, thar eru skoli og heilsugaeslustod sem E. Hillary let byggja.
Utsynid var minna a leidinni til Lukla, haestu fjollin ad miklu leiti i skyjunum. Tvisynt hvort vid gaetum flogid til Katmandu i morgun en thokunni letti.

i stuttu mali sagt einstakt ad hafa sed thennan fjallgard en i raun enn merkilegra ad sja lifshaettina sem folkid byr vid. Er half glotud i ad reyna ad lysa thessu. Thid verdid bara ad andsk.. hingad sjalf og upplifa thetta. Maeli med svo ferd vid alla sem hafa e-n ahuga a ad rolta um e-d annad en vel malbikadar gotur i Reykjavik.

Aelta ad eyda seinustu dogunum i Kathmandu, kiki likl. til Patan og Baktapur sem eru baeir i katmandudalnum. Svo er thad bara ad eyda seinustu rupeeunum i Thamel og borda a Fire&Ice.

over & out.

8 Comments:

At 09:41, Anonymous Nafnlaus said...

Hæ hæ
Það er greinilega engu líkt að rölta upp hlíðar Everest.
Og allt þetta ferðalag hjá þér er frábært.En flugvöllurinn í Lukla er ekki fyrir alla að ferðast um. Ég er viss um að þú hefur hugsað til sumra. Ég hef séð videoklip af lendingu þar.
Vona að restin af ferðinni verði áfram góð og áhugaverð
Hlökkum til að fá fréttir af því
Farðu varlega og vel með þig
Kv Ma&pa

 
At 07:52, Anonymous Nafnlaus said...

Hæhæ
held ég sleppi slíku geggjuðu háfjallaævintýri sem þú ert að stinga uppá - ég meina 5000m hæð - too much for me - kemst ekki einu sinni alla leið uppá esjuna án þess frjósa af hræðslu...hehe.
Annars langar mér að tilkynna stórsigur minn. Fyrsti hjóladagur minn í gær. Og hjólaði alla leið í fjörðinn án þess að stoppa. Finnst ég algjör hetja. Var að vísu heila TVO KLUKKUTÍMA en who's counting...
Fór sjávarleiðina - í geggjuðu veðri. Var alveg að upplifa nýja hluti og nýja parta af Íslandi hahaha...
Eigðu góða tíma sem eftir er í Nepal.
Kv. Kristín

 
At 19:17, Blogger Kristín E. said...

Vá hvað þetta hljómar allt spennandi :o) kannski fer ég í svona ferð um 55-60 ára hehehe Hlakka til að heyra meira

 
At 05:51, Anonymous Nafnlaus said...

Æðislegar lýsingar :D
Vá mig langar líka í svona moment með serpasöng og stjörnuhrapi, hljómar svo ljóðrænt og rómó :)
Meira að segja ég saknaði Ástralanna eftir lesturinn, fullt af krúttlegum mömmum og pöbbum hehe
Og næst eru það ævintýrin í Danmörku sem verða nú heldur hversdagslegri en án efa stór skemmtileg, förum að róa á Kanalen þegar ég kem ;)
Hlakka mikið til að sjá þig eftir Tæland :)
Bæææææ og hafðu það gott
Kv. Anna Mjöll :D

 
At 19:16, Anonymous Nafnlaus said...

Halló Thelma.
Þakka þér fyrir þessar skemmtilegu ferðalýsingar. Ég reyni að ferðast í huganum en það er erfitt. Vonandi drusla ég mér í svona ferð e-h tíman. Bless,Hjördís

 
At 09:47, Anonymous Nafnlaus said...

Hæ skvís,
Geri ráð fyrir að þú sért nú komin til Köben og í geggjað veður þar.
Var að vona að daman fyndi í sér löngun til að halda uppi reglulegu bloggi meðan hún dvelur í danska konungsríkinu. Þótt það séu kannski ekki eins mikil ævintýri að gerast þar þá væri samt gaman að frétta af þér - eins og t.d. hvort þú sért komin með vinnu etc...
Alla vega ertu frábær blogg penni svo þarft ekki að vera feimin við það
Kv. Kristín hjólagarpur

 
At 11:54, Blogger ElvaDaisy said...

Æðislegt að lesa þessar lýsingar !
Hlakka til að sjá myndir (þú tókst myndir er það ekki ???)
Djöfull hefði maður verið hræddur í þessari lendingu sem þú varst að lýsa... úff púff..

Har det godt i köben og vona að þú bloggir áfram :)

Elva (Vlaaa)

 
At 19:46, Anonymous Nafnlaus said...

Hallo Thelma hef verið að fylgjast með ótrúlegum ferðum þínum um heiminn og dáist mjög að krafti og áræðni þínu. Fæ svo stundum fréttir af þér frá mömmu þinni og pabba. Gangi þér áfram vel í þessari ávintýraferð. Kv. Maria og Eggert

 

Skrifa ummæli

<< Home